06.08.2011 23:06

Fór í dag í frábæra tindagöngu og fór upp á Hafratind upp af Fagradal og nágrenni hans .











dag fór ég í mikla fjallgöngu sem hefur verið um það bil 22 km og það var þess virði að fara þessa góðu útivistarleið sem byrjaði við Hvammdalskot upp af Saurbæ og síðan var tölt upp hrygginn til Hrossaborgar sem ég fór til um daginn sem er mjög flott fjall. Og þaðan var skundað áfram til fjallsins Skegg held að það heiti það og teknar nokkrar myndir og áfram var haldið af stað og rölt til Hafratinds sem er upp af fallega dalnum Fagradal á Skarðströnd, útsýnið frá Hafratindi er stórkostlegt á allan hátt þó að maður þurfi að labba í stórgrýttri urð á sjálfan Hafratindinn. En þetta var þess virði að geta sagt það við vini og vandamenn og ekki síst við ykkur síðuskoðendur að, þetta gat kallin frá Berginu góða.
                                                       
                                    Fleiri myndir á nafna mínum http://nonni.123.is
Flettingar í dag: 3609
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 2065
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 1288658
Samtals gestir: 72144
Tölur uppfærðar: 6.1.2025 22:05:18
Flettingar í dag: 3609
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 2065
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 1288658
Samtals gestir: 72144
Tölur uppfærðar: 6.1.2025 22:05:18
clockhere